Hvernig skal klæða sig á skíðum?
Þann 12. janúar var skíðsvæðunum gefið leyfi til að opna brekkur og lyftur fyrir almenning, þó með ákveðnum takmörkunum. Þó veðrið hafi kannski ekki leikið við okkur síðan, í það minnsta hér á suðvesturhorninu, þá trúum við því að góðu dagarnir séu skammt undan. Vonandi mun fólk þá flykkjast á skíðasvæðin, hvort sem það er í Bláfjöllum, Skálafelli, Hlíðarfjalli eða einhverju hinna fjölmörgu frábæru svæða á landinu. Þá skiptir máli að vera rétt útbúin í fjallið. Við hjá Ölpunum erum tilbúin til að taka á móti ykkur og hjálpa við að finna rétta búnaðinn. Við bjóðum upp á vörur frá leiðandi merkjum í skíðaheiminum á borð við Atomic, Salomon og Lenz. Hér að neðan höfum við tekið saman það sem við teljum líklegast til hjálpa þér að eiga ógleymanlegan dag í fjallinu!
Innsta lag og sokkar
Það er ekkert verra en að vera kalt í fjallinu, því er mikilvægt að velja gott innsta lag eða föðurland sem heldur á þér hita allan daginn. Við erum mjög hrifin af innsta laginu frá Lenz, en sá framleiðandi sérhæfir sig í fatnaði fyrir skíðafólk.
- ¾ merino buxurnar frá þeim eru sérstaklega hentugar þar sem þær ná bara niður að skíðaskó og valda því ekki óþarfa þrengslum og þrýsting á kálfa.
- Lenz vörurnar eru samsettar úr Merino Ull og Polamyde, þær einangra vel, losa raka og fylgja hreyfingum líkamans vel.
Innsta lag Konur | Innsta lag Karlar
Lenz framleiðir einnig frábæra skíðasokka úr Merino blöndu, passlega þykkir og hlýir þannig að fótunum líður vel í skónum allan daginn:
Skíðasokkar Konur | Skíðasokkar Karlar
Skíðabuxur og jakki eða millilag og skel?
Það er ekkert eitt svar við því hvernig best er að klæða sig í fjallinu, því segjum við að þetta snúist um að þú veljir það sem þér finnst þægilegt. Sumir vilja einfaldlega geta hent sér í innsta lag og skíðabuxur og skíðajakka yfir á meðan aðrir kjósa lagskiptan klæðan með milllagi eða lögum og skel yfir. Báðar nálganir geta virkað mjög vel.
- Skíðabuxur og jakkar eru í flestum tilfellum sérhannðar flíkur til skíðaiðkunar. Þær hafa því ýmsa sniðgua eiginleika á borð við vasa á ermi fyrir skíðakort, hlífar eða smellur til að varna því að snjór komist inn um skálmar eða mitti.
- Þær er einnig oft hannaðar til að vera liprar á þeim svæðum sem hreyfast mikið við skíðun og harðgerðar á álagspunktum.
- Bæði buxur og jakkar eru svo í flestum tilfellum fóðrað þannig að þér ætti að geta verið hlýtt allan daginn, á sérstaklega köldum dögum eða fyrir kulsækna er svo alltaf hægt að bæta við millilagi.
- Helsti ókostur þessa fatnaðar er helst sá að vatnsheldni og öndun er í flestum tilfellum ekki eins mikil og í skeljum.
Hér má sjá úrval okkar af skíðafatnaði.
Skíðaúlpur Konur | Skíðaúlpur Karlar
Skíðabuxur Kvenna | Skíðabuxur Karlar
Það hefur orðið æ vinsælla á undanförnum árum að nota skelfatnað og lagskiptan klæðnað við skíðaiðkun. Kostir þess eru aukin vatnsheldni, meiri öndun og fleiri möguleikar á að stýra hitastigi. Rétt eins og í göngum eða annari útivist þá getur það verið hentugt að geta bætt við sig eða fækkað lögum eftir aðstæðum. Margir horfa einnig til þess að slíkar flíkur hafa meira notagildi en sérhæfður skíðafatnaður.
- Góður skelklæðnaður og millilög nýtast vel allan ársins hring í öllum aðstæðum.
Hér má sjá úrval okkar af skeljum og millilögum.
Skeljar Konur | Skeljar Karlar
Millilög Konur | Millilög Karlar
Höfuðföt og hanskar
Góðir hanskar geta verið stór þáttur í hversu ánægjulegur dagurinn þinn á skíðum er. Mikilvægt er að hanskarnir séu vel fóðraðir, bæði með góða vatnsheldni og gott grip.
Hanskar Konur | Hanskar Karlar
- Þeir sem eru sérstaklega kulsæknir kjósa oft lúffur fram yfir hanska til að nýta betur þann varma sem líkaminn myndar.
- Flestir nýlegir hjálmar eru fóðraðir með ull eða gerviefnum, í þokkalegu veðri geta auka höfuðföt því verið óþörf.
- Þegar veður er verra eða kuldi meiri getur þó verið gott að vera með lambúshettu eða buff til að auka hlýju eða hlífa andliti fyrir veðri og vindum.
- Að auki er alltaf gott að vera með góða húfu með sér til að skella á sig þegar hjálmurinn er tekinn af.
Höfuðföt Konur | Höfuðföt Karlar
Við vonum að þessi yfirferð hafi verið gagnleg. Svo er auðvitað alltaf hægt að koma til okkar í Faxafen 12 þar sem sérfræðingar okkar gefa gáð ráð við val á búnaði. Sjáumst í fjallinu!