Jólagjafaóskalisti Fjallastelpunnar Völu Húnboga
Vala Húnbogadóttir, útivistarelskandi og ein af stofnendum Fjallastelpna tók saman sinn óskalista fyrir jólin s. Vala á nú þegar þónokkrar af þessum vörum og nýtir því tækifærið til að deila góðri reynslu og hjálpa öðrum við valið.
Fjallastelpur er hópur kvenna á Íslandi sem hafa óbilandi áhuga á útivist og eiga það sameiginlegt njóta sín best undir berum himni. Við hjá Ölpunum höfum verið aðdáendur þessa framtaks frá byrjun og njótum þess að fá hópinn til okkar í búðina að fylla á ævintýrabúnaðinn. Við mælum sérstaklega með að fylgja Fjallastelpum á Instagram og á Facebook.
Chamois buxurnar frá Mountain Equipment eru ótrúlega þægilegar, léttar, háar i mittið og toga hvergi í. Þær virka við hvaða tilefni sem er, á fjöll eða á kaffihús.
2. MICROspikes, margverðlaunaðir hálkubroddar sem við fáum ekki nóg af.
3. Úlpa frá Mountain Equipment sem heldur á manni hita í hvaða aðstæðum sem er. Vatnfráhrindandi og sérstaklega framleidd fyrir mikið frost.
4. Klassíska létta en hlýja húfan.
5. Bliz gleraugun, frábær í alla útivist
6. Trailblazer bakpokinn, léttur og þægilegur.
7. Gjafabréf Útivistarmanneskjunnar. Þú ræður upphæðinni. Má nota í verslun sem og netverslun.
8. Draumasvefnpoki fyrir útilegur allan ársins hring.
Fjallastelpur njóta útivistar í hvaða verðum sem er og eru okkur stöðugur innblástur til nýrra ævintýra. Hver væri ekki til í þessa morgunstund?