Skilmálar

Almennt

Alparnir áskilur sér rétt til að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga auk þess að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Kennitala: 520319-0770

VSK Númer: 134115

Afhending Vöru

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Alparnir ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Ölpunum og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Vörur pantaðar í netverslun fyrir hádegi eru afgreiddar samdægurs, sé allt eðlilegt, annars næsta virka dag.

Athugið að fyrirvari er gefin á því að pöntuð vara geti mögulega selst upp í verslun á meðan pöntun gerð í netversluninni fer í gegnum kerfið, en það getur tekið allt að 15 mínútur. Komi upp slíkar aðstæður munum við strax hafa samband og bjóða viðkomandi sambærilega vöru eða endurgreiðslu.

Athugið að vara sem er pöntuð á netinu og greidd með korti afgreiðist eftir kl: 14 alla daga.

Vörur pantaðar á netinu og greiddar með bankamillfærslu afgreiðist eftir klukkan 14 næsta virka dag. 

Við sendum frítt á næsta pósthús eða póstbox ef pantað er fyrir 10.000 kr eða meira.

Sendingar undir 10.000 kr. bera flutningsgjald samkvæmt verðskrá póstsins. 

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í verslunum Alpana ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.