Jólagjafaóskalisti hlauparans Birgis Más
Birgir Már Vigfússon er einn öflugasti utanvegahlaupari landsins. Hann lenti eftirminnilega í 2.sæti í 100 km í Hengli Ultra og keppti einnig í TDS hlaupinu í Mont Blanc 2019. Hann lætur ekki þar við sitja og stundar nú einnig fjallaskíði, gönguskíði, fjallgöngur og fleira útvistabrölt af fullum kappi. Hér er hans jólagjafaóskalisti frá Ölpunum í ár.
1. Primo innsta lagið, heldur þér passlega heitum á hlaupum og göngum, þornar hratt og temprar hita.
2. Bonatti regn jakki og lúffur. Mikil vantsheldni og öndun.
3. Sense ride 3 Léttir og þægilegir skór sem virka á allar tegundir af undirlagi.
4. Nanospikes, ómissandi í öll hlaup í hálku.
5. S/lab ultra 5 vesti. Eitt léttasta hlaupavesti á markaðnum.